Pure Deli

Fallegur & góður matur 🥑

This menu is in Icelandic. Would you like to view a machine translation in another language?

Vefjurnar

Salötin

Toastin

Barnamatseðill

Sætir bitar

Safar & drykkir

Drykkir

Pure deli er veitingastaður á Suðurlandsbraut 48. Hann er í einkaeigu og rekin af litlu fjölskyldufyrirtæki. Á Pure deli færðu ferskan, bragðgóðan & hollan mat frá morgni til kvölds og um helgar í einstaklega fallegu umhverfi. Okkar metnaður liggur í upplifun viðskiptavina okkar að þeir fái góðan, fallegan mat og góða þjónustu á sanngjörnu verði. Okkar markmið er einnig að vera eins umhverfisvæn og hægt er og geta þjónustað alla hópa eins og við getum. Við erum t.d með haframjólk og möndlumjólk fyrir þá sem vilja það og tökum ekki aukagjald þar þó hún sé vissulega mun dýrari en kúamjólkin. Fyrir þá sem eru með gluteinóþol höfum við í boði gluteinlaust brauð sem hægt er að biðja um í stað vefjubrauðsins eða súrdeigsbrauðsins og erum einnig alltaf með gluteinlausa köku í boði. Vegan möguleikar eru í boði í öllum vöruflokkum og munum við kappkosta við að bæta í þá flóru á næstunni. Við notum leirtau þegar borðað er á staðnum og erum með pappa umbúðir og endurvinnanlegt plast að hluta sem er notað með í lokin. Við vitum að margt meira er hægt að gera til að vera enn umhverfisvænni og viljum bæta okkur þar einsog hægt er hverju sinni. Starfsfólkið okkar skiptir okkur öllu máli, að þeim líði vel í vinnunni og séu að fást við verkefnin af heilum hug. Allir starfsmenn eru jafnmikilvægir og lykilatriðin þjú eru traust, fagmennska & gleði.

Address

Suðurlandsbraut 48

108 Reykjavik

See map

Delivery times

Monday09:00–20:00
Tuesday09:00–20:00
Wednesday09:00–20:00
Thursday09:00–20:00
Friday09:00–20:00
Saturday10:00–20:00
Sunday10:00–20:00

More information