Chicco grow and walk 4 in 1 með ljósum, hljóðum og tónlist. Leikfang sem nýtist barninu frá fæðingu og til 3 ára aldurs
1 .Frá fæðingu er Chicco gro and walk notað sem leikgrind, Borðinu er snúið niður svo barnið geti skoðað og leikið sér með leikföngin sem hanga þar niður úr.
2 Þegar barnið er farið að sitja getur það setið við leikstöðina og fiktað í tökkum, hlustað á tónlist ofl.
3 Þegar barnið er byrjað að æfa sig að ganga er borðið stillt þannig að haldfangið sé í góðri hæð og barnið notar leikstöðina sem gönguvagn.
4 Þegar barnið getur staðið sjálft er leikborðið snúið þannig að það snýr beint upp og nýtist þá sem hljómborð.