Flóruspilið - annar stokkur
Spilið er í anda spilsins “veiðimaður” þar sem markmiðið er að safna fjögurra spila samstæðum. Í stað hefðbundinna spila er spilað með íslenskar plöntutegundir. Á spilunum eru upplýsingar um grasnytjar og þjóðtrú tegundanna ásamt latínuheiti, gróðurlendi og ætt. Spilið er hugsað til fróðleiks og stkemmtunar. Stokkurinn er stærri en hefðbundinn spilastokkur en hann er 10,5 X 14,7 cm.