Dualit Classic brauðrist
Dualit brauðristin á rætur sínar að rekja allt aftur til ársins 1952 þegar Max Gort-Barten, stofnandi hins sögufræga fyrirtækis, hannaði nýja 6 sneiða brauðrist fyrir stóreldhús og veitingastaði í Bretlandi.
Í dag eru Dualit brauðristar viðurkenndar og rómaðar fyrir einfaldleika sinn klassískan iðnaðarstíl sinn sem hefur varla breyst í 70 ár. Þær eru allar handsmíðaðar í verksmiðju fyrirtækisins í West Sussex og nafn þess sem setti saman tiltekna brauðrist er grafið í botninn.
Best af öllu er svo auðvitað hið fullkomna ristaða brauð, þökk sé ProHeat® elementinu sem er einstaklega þéttriðið. Brauðið er því nánast jafnristað horn í horn, stökkt að utan og mjúkt að innan.
Handsmíðað á Bretlandi
Hver einasta brauðrist frá Dualit er handsmíðuð. Nafn þess sem smíðaði brauðristana er grafið í botninn.
Umhverfisábyrgð
Hægt er að skipta út og laga alla hluti brauðristarinnar sem endist í lífstíð.
Einstök ProHeat® tækni
ProHeat hita element finnast aðeins í brauðristum frá Dualit. Tryggir jafna og góða ristun.
1200 wött
2 sneiðar
Handsmíðað
Fágað stál
ProHeat® element
28 mm brauðop
Hentar fyrir stóreldhús
Ristar allt að 65 sneiðar á klukkustund
Mekanískur tímastillir
Handvirkur lifti búnaður
Beyglu stilling - ristaðu bara öðrumeginn
Affrysting
High Lift - fjarlægðu brauðið án þess að eiga á hættu að brenna fingurnar
Mylsnubakki
Non-slip fætur
Hægt að fá samlokugrind aukalega*
Hæð 22 cm
Breidd 26 cm
Dýpt 21 cm
Vörunúmer: 20258-16
Flokkur:
BRAUÐRISTAR,
HÓTELVÖRUR,