Sumarleikur Wolt ☀️

Birt:
30. júlí 2026
Tveir heppnir vinningshafar verða dregnir út 1. september!
1. vinningur: iPhone 17 256GB í lit að eigin vali 📱 2. vinningur: 100.000 kr. Wolt gjafabréf 💙 Hvor vinningshafi fær einn vinning. Annar vinnur iPhone og hinn vinnur Wolt gjafabréfið. Til að taka þátt: Pantaðu á Wolt, sláðu inn kóðann "SUMARLEIKUR" í körfunni og þú ferð sjálfkrafa í pottinn! Frekari upplýsingar og skilmála má finna hér að neðan. Gleðilegt sumar! ☺️
Skilmálar
Einn þátttökuréttur fæst fyrir hverja gjaldgenga pöntun þar sem kóðinn er notaður. Þátttaka er án sérstaks gjalds og hefur ekki áhrif á verð pöntunarinnar. 1. Hvenær er dregið? Dregið verður þann 1. september 2026. Vinningshafar verða valdir af handahófi og haft verður samband við þá í gegnum tengiliðaupplýsingar sem tengjast Wolt reikningnum þeirra. 2. Hverjir geta tekið þátt? Leikurinn gildir fyrir viðskiptavini á Íslandi sem eru 18 ára eða eldri og eru með virkan Wolt reikning. Starfsfólk Wolt, tengdra félaga og samstarfsaðila sem koma að framkvæmd leiksins er ekki gjaldgengt til þátttöku. Wolt áskilur sér rétt til að ógilda þátttöku ef grunur vaknar um misnotkun, svik, stofnun margra reikninga eða aðra óeðlilega háttsemi. 3. Persónuupplýsingar Wolt vinnur persónuupplýsingar þátttakenda í þeim tilgangi að halda utan um þátttöku, framkvæma útdrátt, hafa samband við vinningshafa og afhenda vinninga. Upplýsingarnar verða aðeins varðveittar eins lengi og nauðsynlegt er vegna framkvæmdar leiksins og lagaskyldna Wolt. Persónuupplýsingar sem tengjast leiknum verða ekki notaðar í beina markaðssetningu nema þátttakandi hafi veitt sérstakt samþykki eða önnur lögmæt heimild sé fyrir hendi. Nánari upplýsingar má finna í persónuverndarstefnu Wolt. 4. Aðrir skilmálar Vinningar eru ekki innleysanlegir fyrir reiðufé og eru ekki framseljanlegir. Vinningshafi ber ábyrgð á sköttum eða gjöldum sem kunna að falla til vegna vinningsins, eftir því sem við á samkvæmt lögum. Um leikinn gilda íslensk lög.

