Bláa Kannan kaffihús er staðsett í hjarta bæjarins í húsinu París sem Sigvaldi Þorsteinsson stórkaupmaður byggði árið 1913. Húsið var byggt sem verslunarhús og opnaði Sigvaldi þar verslunina París. Bláa kannan opnar á morgnana með nýbökuðu brauði, samlokum, tertum og allskonar kruðeríi. Boðið er upp á súpu allan daginn, grænmetisbökur o.fl ásamt fersku Rubin kaffi. Á Bláu könnunni er borið fram ekta heitt súkkulaði með rjóma, Swiss Mocca, Cappuccino og Latte svo eitthvað sé nefnt.
| Mánudagur | 11:00–19:00 |
| Þriðjudagur | 11:00–19:00 |
| Miðvikudagur | 11:00–19:00 |
| Fimmtudagur | 11:00–19:00 |
| Föstudagur | 11:00–19:00 |
| Laugardagur | 11:00–19:00 |
| Sunnudagur | 11:00–19:00 |