Topp 10
Vinsælustu réttirnir
Fyrst og fremst sjávarréttaveitingastaður með fjölbreytt úrval fisktegunda & mikið úrval sushi-rétta, í bland við kjötrétti
Vinsælustu réttirnir
Rub23 hefur að markmiði að bjóða upp á fjölbreyttan, einfaldan og spennandi valkost fyrir breiðan hóp viðskiptavina. Rub23 er fyrst og fremst sjávarréttaveitingastaður með fjölbreytt úrval fisktegunda og mikið úrval sushi-rétta, í bland við kjötrétti. Það er þó eitt sem öðru fremur skapar veitingastaðnum sérstöðu á íslenskum sem og alþjóðlegum markaði en það er fjölbreytt samsetning matseðils með tilbúnum kryddblöndum sem viðskiptavinir geta valið. RUB er orðið þekkt heiti yfir kryddblöndur sem eru settar á og/eða nuddað í hráefnið, eins og nafnið bendir til. Þannig geta viðskiptavinir valið sér hráefni, fisk eða kjöt, og valið svo af lista þá kryddblöndu sem þeir vilja prófa. Á matseðli eru uppáhaldssamsetningar kokkanna hverju sinni.
| Mánudagur | 11:30–14:00, 16:00–20:30 |
| Þriðjudagur | 11:30–14:00, 16:00–22:00 |
| Miðvikudagur | 11:30–14:00, 16:00–22:00 |
| Fimmtudagur | 11:30–14:00, 16:00–22:00 |
| Föstudagur | 11:30–14:00, 16:00–22:00 |
| Laugardagur | 16:00–22:00 |
| Sunnudagur | 16:00–22:00 |