This product offering is in Icelandic. Would you like to view a machine translation in another language?
This product offering is in Icelandic. Would you like to view a machine translation in another language?
Bakarameistarinn hefur verið í fararbroddi í sinni grein allt frá því hjónin Sigþór Sigurjónsson bakarameistari og Sigrún Stefánsdóttir stofnuðu fyrirtækið í janúar árið 1977. Opnun Bakarameistarans í Suðurveri olli svo að segja straumhvörfum á sínu sviði, enda höfðu Reykvíkingar ekki áður kynnst viðlíka þjónustu og vöruúrvali eins og Bakarameistarinn varð strax kunnur fyrir. Markmið fyrirtækisins voru snemma mjög skýr; að vera í fararbroddi með nýjungar og öfluga vöruþróun, bjóða upp á mikið vöruúrval, hraða og örugga þjónustu, góða fagmenn í bakstrinum og síðast en ekki síst að nota einungis gæðahráefni til að búa til úrvalsvöru. Þessum atriðum hefur ávallt verið haldið til haga í rekstrinum. Bakarameistarinn starfrækir nú níu kaffihús víðsvegar á höfuðborgarsvæðinu. Þótt starfsfólki okkar hafi fjölgað úr 20 árið 1977 í rösklega 170 manns hafa markmið Bakarameistarans ekkert breyst og eru alltaf jafn skýr; við þjónum þér
Monday | 08:00–17:00 |
Tuesday | 07:30–14:00 |
Wednesday | Closed |
Thursday | 08:00–17:00 |
Friday | 08:00–17:00 |
Saturday | 08:00–17:00 |
Sunday | 08:00–16:00 |