Rafha

Heimilistæki í úrvali!

Allir hlutir

14950 kr.

Remington Curl&Straight hárblásari

10950 kr.

Valera hárblásari á vegg

11950 kr.

BaByliss Bronze Shimmer hárblásari

8450 kr.

Remington hárblásari

8975 kr.

BaByliss hárblásari

6950 kr.

BaByliss Speed Pro hárblásari

8950 kr.

Valera hárblásari á vegg hvítur

6950 kr.

Babyliss hárblásari

4950 kr.

Domo hárblásari

5950 kr.

Philips hárblásari

3950 kr.

Revlon ferða hárblásari

16950 kr.

Silk'n AutoTwist krullujárn

13950 kr.

Remington Curl & Straight sléttu- og krullujárn

12950 kr.

Remington Keratin Protect sléttubursti

10950 kr.

BaByliss Paris sléttujárn

8950 kr.

BaByliss SleekFinish sléttujárn

8950 kr.

BaByliss Style sléttu- og krullujárn

7950 kr.

Remington Pearl krullujárn

5950 kr.

BaByliss Ceramic Straight 230 sléttujárn

5950 kr.

BaByliss SublimTouch krullujárn

5975 kr.

Braun sléttujárn

39950 kr.

Rakvél Braun Seria 8 Wet & Dry

19950 kr.

Philips rakvél 5000 series

14950 kr.

Philips OneBlade Pro 360

14950 kr.

Philips Series 3000 rakvél

13950 kr.

Remington GraphiteG5 rakvélaset

12950 kr.

Remington Classic Edition hárklippur

9950 kr.

Braun all in one multitrimmer

9975 kr.

BaByliss ProBeard rakvél

9950 kr.

Braun 6-in1 rakvélasett

9950 kr.

Remington Zoom skeggsnyrtir

6666 kr.

BaByliss Powerlide hárklippur

8950 kr.

BaByliss BodyTrim rakvél

8950 kr.

Braun multitrimmer

6450 kr.

Philips OneBlade rakvél

6450 kr.

Philips rakvélasett

4450 kr.

Philips nefháraklippur

69950 kr.

Háreyðingartæki Silkn Motion Premium

49950 kr.

Silk'n Jewel Infinity hárðeyðingartæki

29950 kr.

Silk'n Jewel LUXX hárðeyðingartæki

Samhliða raforkuvæðingu Íslendinga m.a. með virkjun Sogsins, spruttu upp hugleiðingar um framleiðslu íslenskra rafmagnstækja. Árið 1936 var stofnað hlutafélagið H/F Raftækjaverksmiðjan í Hafnarfirði og vörumerki félagsins sem nota átti á framleiðsluvörurnar stytt í Rafha. Stofnendur voru auk ríkissjóðs 22 einstaklingar. Sótt var um lóð fyrir væntanlega verksmiðjubyggingu við Lækjargötu 22-30, á bakka Hamarkotslækjar. Lokið var við byggingu nýrrar verksmiðju 1937. Hún var að mestu ein hæð, samtals 702,5 m² og störfuðu um 20 verkamenn auk nokkurra sérfróðra manna hjá fyr irtækinu. Vélar voru keyptar fyrir milligöngu Berg-Hansens verkfræðings í Noregi. Forráðamenn Rafha sömdu við hann um leyfi til að framleiða þær vélar, sem verksmiðja hans í Noregi framleiddi ásamt því að skaffa efni til framleiðslunnar. Fyrsta Rafha eldavélin leit dagsins ljós með framleiðslunúmer 1 um mánaðarmótin ágúst-september 1937. Það sem eftir lifði árs voru aðeins framleiddar 184 eldavélar enda þótti heppilegt að fara varlega í rekstri verksmiðjunnar fyrst í stað. Fyrstu árin voru erfið þar sem Rafha glímdi við hráefnis-og gjaldeyrisskort og ekki bætti úr skák, að ástandið í heimsmálum var eldfimt. Með hernámi Danmerkur og Noregs í apríl 1940, var ljóst að leita þyrfti nýrra leiða til að útvega hráefni og halda starfseminni gangandi. Í því skyni var hönnuð ný eldavél með amerískum rafbúnaði og samsetningarhlutum þ.á.m. svokölluðum gorma- eða spíralhellum og hitastilli með fharenheit kvarða. Eftir að stríðinu lauk vænkaðist hagur fyrirtækisins verulega, salan tók kipp og húsnæðið farið að þrengja að. Verksmiðjan var stækkuð til muna árið 1945 og ný tæki og vélar teknar í notkun. Rætt var um nýjar framleiðsluvörur og árið 1946 var leitað samninga við Electrolux um notkun einkaleyfa þeirra á framleiðslu kæliskápa. Á þessum fyrsta áratug hafði verksmiðjan framleitt 22.730 rafmagnstæki af 30 tegundum og hjá fyrirtækinu störfuðu 46 menn, en unnt hefði verið að veita allt að 80 manns atvinnu, ef hráefni hefði ekki skort. 1951 var húsnæði stækkað enn frekar og aftur 1957 og taldi nú yfir 5000 fermetra. 1952 hófst framleiðsla á ryksugum og sama ár fór Rafha og Vélsmiðjan Héðinn að framleiða í sameiningu þvottavélina Mjöll. 1958 hóf Rafha að framleiða innbyggðar ofna og helluborð sem nutu mikilla vinsælda. Þegar Rafha fagnaði 20 ára afmæli sínu árið 1956, hafði verksmiðjan framleitt 60.683 rafmagnstæki, þar af 25.206 heimiliseldavélar. Uppúr 1960 tók að halla undan fæti, þegar innflutningur var gefinn frjáls. Þá dró úr framleiðslu verkmiðjunnar, og hagur hennar versnaði. Enn versnaði hagur Rafha upp úr 1970 þegar tollar á fullunnum iðnaðarvörum í áföngum vegna samninga EFTA. Framleiðslu var hætt á mörgum óarðbærum vörum. Til að sporna gegn frekari samdrætti var ráðist í innflutning á heimilistækjum frá fyrirtækjum á borð við Zanussi, Küppersbusch, Beha og Progress og ný verslun opnuð með heimilistæki í Austurveri. Á níunda áratugnum var leitað nýrra tækifæra til að auka hag fyrirtækisins og hugsanlega útrás til annarra landa. Ákveðið var að fjárfesta í tækjabúnaði frá Svíþjóð til að framleiða eldhúsviftur sem nutu fádæma vinsælda. Á sama tíma hófst í fyrsta sinn útflutningur á viftum til nokkurra landa. Á fimmtíu ára afmæli Rafha, var tímamótunum fagnað með opnun glæsilegrar verslunar í húsakynnum Rafha við lækinn í Hafnarfirði árið 1986. Ásamt því að bjóða uppá innflutt heimilistæki og rammíslenskar eldavélar og viftur, voru nú einnig hannaðar og fluttar inn eldhús- og baðinnréttingar frá Modulia. Árin sem á eftir komu voru erfið, einkum í ljósi harðnandi samkeppni við ódýra innflutta framleiðslu og ójafnvægis í íslenskum þjóðarbúskap. Útflutningur gekk ekki sem skyldi m.a. vegna óstöðugleika íslensku krónunnar. Ríkið var ennþá ráðandi eignaraðili og vildi lítið aðhafast. Árið 1990 var ákveðið að leggja af alla framleiðslu fyrirtækisins og selja verslunarreksturinn. Ingvi. I. Ingason þá framkvæmdastjóri festi kaup ásamt fjölskyldu, á þeim hluta ásamt öllum viðskiptasamböndum og Rafha nafninu. Síðan 1996 hefur Rafha rekið 1000 fermetra verslun við Suðurlandsbraut 16 í Reykjavík. Árið 2005 var öll verslunin endurnýjuð, úrvalið aukið og þjónustan bætt. Í dag flytir Rafha inn og selur heimilistæki frá heimsþekktum framleiðendum á borð við Electrolux, Zanussi, AEG, Küppersbusch, Appliance og fleiri. Einnig tók Rafha til sölu nýtt merki með eldhúsinnréttingar frá Lineadecor.

Sjá svipaðar verslanir

Heimilisfang

Sudurlandsbraut 16

110 Höfuðborgarsvæðið

Sjá kort

Heimsendingartímar

Mánudagur09:00–18:00
Þriðjudagur09:00–18:00
Miðvikudagur09:00–18:00
Fimmtudagur09:00–18:00
Föstudagur09:00–18:00
Laugardagur11:00–16:00
SunnudagurLokað